Kæri Jóli!

Ég er búin að vera svo góð mamma allt þetta ár. Ég hef eldað
mat,
>bakað, tekið til, og knúsað eftir þörfum. Setið á
læknabiðstofum,
þrifið gubb, kysst á bágt, verið virk í foreldrafélaginu, rólað,
kubbað og drullumallað.


Ég var að vonast til að þú dreifðir þessum óskum mínum yfir
nokkur jól,
þar sem ég þurfti að skrifa þetta bréf með rauðum vaxlit sem
sonur minn
á, aftan á gamalt umslag, í þvottahúsinu meðan ég beið eftir
að vélin
kláraði, til að geta sett í þurrkarann. Hver veit hvenær ég hef
næst
lausan tíma næstu 18 ár.


Hér eru jólaóskirnar mínar.


Ég vil gjarnan fá nýja fætur sem þreytast ekki þó þeir hlaupi á
eftir
krökkum allan daginn (allir litir nema fjólubláir, ég á svoleiðis).
Ég
vil líka gjarnan fá handleggi sem eru nógu sterkir til að bera
organdi
krakka út úr nammideildinni í hagkaup. Svo vil ég gjarnan fá
nýtt
mitti, virðist hafa týnt því gamla einhverntíman á síðustu
meðgöngu.


Ef þú ert í því að gefa stóra hluti þetta ár, þá vildi ég gjarnan
eiga
bíl með rúðum sem ekki kámast, útvarp sem spilar engöngu
fullorðinstónlist, sjónvarp sem sýnir enga þætti með talandi
dýrum og
ísskáp með leynihólfi þar sem ég get talað í símann í friði.


Á praktískari nótum myndi ég gjarnan vilja talandi dúkkudóttur
sem
segir alltaf “já mamma mín” til að efla uppeldislegt
sjálfstraust mitt, eitt smábarn sem hætt er á bleyju, tvö börn
sem slást aldrei, vettlinga og húfur sem ekki týnast, og
rennilása sem rennast sjálfir.


Ég gæti vel notað geisladisk með upptöku af tíbeskum
munkum sem kyrja
“ekki borða í stofunni” og “láttu bróður þinn í friði” þar sem
röddin mín virðist vera á einhverju tíðnisviði sem börnin nema
alls ekki, bara hundurinn.


Ef það er orðið of seint að finna þessa hluti þá get ég alveg
sætt mig
við nægan tíma til að bursta tennurnar og greiða mér á
morgnana og geta
borðað matinn minn áður en hann kólnar. Svo gæti ég alveg
þegið nokkur
jólakraftaverk til að lífga upp á skammdegið. Væri til of mikils
mælst
að gera tómatsósu að grænmeti, það myndi létta verulega á
samvisku
minni?


Það væri líka til bóta ef þú gætir fengið börnin mín til að hjálpa
til á heimilinu, án þess að krefjast borgunnar eins og ítalskir
mafíósar og ef stubburinn minn væri ekki svona krúttlegur
þegar hann stelst í ískápinn rétt fyrir mat.


Jæja Jóli. Nú hringir bjallan á þurrkaranum og sonur minn
lemur á
hurðina og vill fá litinn sin aftur.


Góða ferð heim og bið að heilsa Grýlu.


Jólakveðja, mamma.

PS.
Eitt að lokum. Geturðu afturkallað allar óskir um að börnin mín
verði
alltaf nógu ung til að trúa á þig.