Óþolandi Halló Halló!
Hlakkar ykkur til jólanna :D?
Allaveganna þá hata ég hvernig Jólasveinar ganga um gólf er sungið!

Ég veit að það á að vera sungið:

Jólasveinar ganga um gátt
með gildan staf í hendi
móðir þeirra hrýn við hátt
og hýðir þá með vendi

Upp á hól stend ég og kanna
níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna
Upp á hól stend ég og kanna
níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna.

Það sem er sungið á jólunum:
Jólasveinar ganga um gólf
með gylltan staf í hendi
móðir þeirra sópar gólf
og flengir þá með vendi

Upp á stól stendur mín kanna
níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna
Upp á stól stendur mín kanna
níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna

Vona að þið sjáið hvað þetta er asnalegt ef þið berið þetta saman!

Ég vildi koma þessu á framfæri því að hitt er svo pirrandi!

-AnnaPotte
…Heyrru núhh kveð ég bra úr stundinni okkar.. bæjj;*