Meðhöndlum skotelda með varúð!

Undirbúningur:
Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja skoteldum.
Breytið ekki eiginleikum skotelda.
Geymið skotelda á öruggum stað.
Gerið ráðstafanir vegna gæludýra, þau eru viðkvæm fyrir hávaða.


Hvað þarf:

Viðurkennd öryggisgleraugu og hanska.
Hólk til að skorða flugelda.
Slétt og stöðugt undirlag á opnu svæði.
Sjúkrakassa til taks.


Þegar skotið er upp:

Kveikið í skoteldum með útréttri hendi, beygið ykkur ekki yfir þá.
Hafið sérstakar gætur á börnum.
Víkið strax frá eftir að kveikt hefur verið í skoteldum og haldið öðrum í fjarlægð.
Reynið ekki að kveikja aftur í skoteldum sem áður hefur verið kveikt í.
Skjótið ekki upp skoteldum við bálkesti.
Gerið viðeigandi ráðstafanir vegna mögulegrar eldhættu af völdum skotelda.

Stjörnuljós og handblys:

Látið börn aldrei meðhöndla stjörnuljós án eftirlits fullorðinna.
Látið börn aðeins hafa eitt stjörnuljós í einu.
Haldið stjörnuljósi og handblysi frá líkama.
Handblys eru varasöm börnum og unglingum.


Að lokinni sýningu:

Fjarlægið notaða skotelda með varúð.
Farið aftur yfir svæðið daginn eftir og fjarlægið skoteldaleifar.
Munið símanúmer Neyðarlínunnar: 112