Jæja, kæru hugar nú er aðfangadagur runninn upp og eflaust allir komnir í jólaskap þrátt fyrir snjóleisið á þessu “ís”landi!
en það breytir þó ekki öllu, í kvöld munum við sitja til borðs með fjölskyldum okkar og borða góðan mat og drekka malt og appelsín, ég veit nú ekki í hvernig röð þið gerið þetta en fjölskyldan mín oppnar pakkana á eftir að hafa borðað hamborgarahrygg inni í stofu og eftir það er eftirréttur, ef röðin hjá ykkur er ekki svona þá endilega segið okkur hinum hvernig hún er. :) og hvað borðið þið?
Allavega ég vil óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, lifið heil!!!!

Kv. Cookie :)
*Lifi rokkið*