jólasveinninn rekinn-partur 5 (ekki 4) Partur 5

Þið sem vitið ekkert hvað sé að ske, lesið part 1, 2, 3, 4

…Það sem jólasveinninn á eftir að sjá er ekki fögur sjón…

Jólasveinninn sér að blóðlína verður þykkari og þykkari og brátt kemur hann auga á eitthvað. Það er eitthvað undir klakabroti. Jólasveinninn lyftir klakabrotinu.
Getur það verið?
Tumi er undir klakabrotinu og hreyfir sig ekki. Jólasveinninn sér allt blóðið og bíður hins versta.
Hann byrjar að pota í Tuma og reynir að vekja hann. Ekkert virkar. Jólasveinninn er að missa vonina. Hann er búinn að missa besta hreindýrið, besta aðstoðarálfinn og nú vonina.
Hann heldur áfram að pikka í Tuma. Brátt fyrir kraftaverk rankar Tumi við sér.

,,Ahhh…Herra! Þú ert á lífi!” kallar Tumi þegar hann er vaknaður.
,,Við verðum að koma þér á sjúkrahús” segir jólasveinninn.
,,Af hverju? Það er allt í lagi með mig. Já og meðan ég man þá fann ég dauðan björn ofan í sömu sprungunni og ég datt í. Ég tók hann bara með mér og borðaði” útskýrði Tumi á meðan hann rétti jólasveininum þykkan og mjög blóðugan bita.
,,Hvernig komumst við upp?” spyr jólasveinninn.
,,Það reddast. Rétt áður en við lögðum af stað lét ég NMT-símann í búninginn þinn.

Jólasveinninn byrjar að gramsa í öllum vösunum.

,,Hvar?” spyr hann svo.
,,Ekki ertu að segja mér að hann datt úr?” spyr Tumi skelkaður.
,,Hann er ekki hér” svara jólasveinninn.
,,Shit! Við erum dauðir!” kjökrar Tumi.
,,Þetta reddast” segir jólasveinninn og reynir að hughreysta Tuma.

Tumi byrjar að labba um og leita að útgönguleið. Jólasveinninn labbar rétt á eftir.

,,Hvað var þetta annars sem var að skjóta á okkur snjóboltum” spyr Tumi.
,,Þetta var sendiflaug frá Meme. Þú hafðir getað séð það að það á stélinu. Það voru þrjú strik á því” útskýrir jólasveinninn.
,,Þrjú?! þau voru tvö sýndist mér” segir Tumi gáttaður.
,,Það getur ekki verið. Faratækin mín hafa tvö strik” segir jólasveinninn líka gáttaður
,,ó. Það hefur kannski bara líka verið ég sem ruglaðist” segir Tumi á meðan hann gengur fram hjá horni.

Þegar jólasveinninn labbar fram hjá sama horni og Tumi gekk inn um sér hann Tuma liggjandi á klakanum.

,,Hvað?! Tum…”

Jólasveinninn gat ekki klárað setninguna því áður en hann gerði það fann hann fyrir höfuðhöggi og allt varð svart.

Hvað var það sem rotaði jólasveininn og Tuma?
Af hverju eru þrjú strik á farartækjum Memear en farartækið sem skaut snjóboltunum var aðeins með tvö? Eins og farartæki jólasveinsins.
Hvernig bjargast jólasveinninn og Tumi?

Fylgist með í næsta parti.