12. desember kemur Stekkjarstaur: Fannst best að sjúga ærnar en var með staurfætur svo það gekk heldur erfiðlega

13. desember kemur Giljagaur: Hafði yndi af mjólkurfroðunni og hélt sig mest í fjósinu.

14. desmeber kemur Stúfur: Var lítill og snaggaralegur og fannst dásamlegt að kroppa leifarnar af pönnunum. Sérstaklega ef þær voru vel viðbrenndar

15. desember kemur Þvörusleikir: Mjór eins og girðingarstaur og þótti ekkert betra en að sleikja þvörur sem notaðar voru til að hræra í pottum.

16. desember kemur Pottasleikir: Hirti óhreinu pottana úr eldhúsinu og skóf þá að innan með puttunum. Þeir þurftu engan þvott eftir þá meðferð.

17. desember kemur Askasleikir: Stal öskum fólksins, faldi sig með þá og skilaði ekki aftur fyrr en þeir voru tómir.

18. desember kemur Hurðaskellir: Fannst ekkert skemmtilegra en að skella hurðum og notaði til þess hvert tækifæri sem gafst.

19. desember kemur Skyrgámur: Ægilegur rumur sem þefaði uppi skyrtunnurnar og át þar til hann stóð á blístri

20. desmeber kemur Bjúgnakrækir: Fimur við að klifra uppi í rjáfri og stal þar reyktum hrossabjúgum.

21. desember kemur Gluggagægir: Gægðist inn um hvern glugga til að reyna að koma auga á eitthvað sem hann gæti hnuplað

22. desmeber kemur Gáttaþefur: Með sitt heljarstóra nef gat hann fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir og runnið þannig á sinn uppáhaldsmat, laufabrauð

23. desember kemur Ketkrókur: Stakk löngum stjaka með króki á niður um strompana til að krækja í kjötlærin sem héngu í eldhúsloftinu.

24. desember kemur Kertasníkir: Þótti góð tólgarkerti og átti í miklu sálarstríði af því hann gat ekki bæði horft á fallegan logann af þeim og borðað þau.