Valsmenn hafa beðið um að Oddaleikur þeirra og KA-manna muni fara fram í Laugardalshöll á föstudag. Þegar þeir fengu svar frá starfsmönnum Hallarinnar fengu þeir svarið NEI vegna þess að verið verður að gera klárt fyrir einhverja sýningu hjá Kínverskum munkum um helgina. Mér finnst þetta til skammar íþrótta og handbolta að ekki sé hægt að finna einhverja lausn á þessu, vegna þess að ég hefði nú haldið að Laugardalshöllin sé aðallega til Íþróttaiðkana.

JAfnvel þó svo að Höllin hafi verið pöntuð fyrir löngu fyrir þessa sýningu, þá finnst mér þetta hneyksli, því að Valskofinn er alltof lítill til að rúma allann þann fjölda sem á eftir að koma á leikinn.