Sælir handboltakarlar.

Fann á netinu frían handbolta manager. Datt til hugar hvort einhverjir aðrir hefðu áhuga. Gallinn við þennan leik að það eru ekki nógu margar deildir þarna. Vantar þessa íslensku :(
En danska og þýska deildin eru þarna ásamt nokkrum íslendingum.
Hef afturámóti haft samband við þann sem skrifaði leikinn og spurði hvort hann vildi að ég mundi senda honum upplýsingar um íslensku deildina svo hann gæti skellt henni inn. Hann tók vel í það. Þannig að ef einhver nennir að standa í þessu með mér þá væri það vel þegið. Of mikið að gera þetta einn held ég.
Kveðja Gabble
“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”