http://www.visir.is/article/20081025/IDROTTIR02/166576061


Ólafur á leið til Danmerkur?

Ólafur í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar:

Ólafur Stefánsson mun ver á leið til danska 3. deildarliðsins Glostrup eftir því sem kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins.

Ólafur er gestur hjá Evu María Jónsdóttur í þætti hennar þar í kvöld og þar segir hann að hann sé á leiðinni til Kaupmannahafnar að spila handbolta.

Fréttastofa Sjónvarps hefur það eftir sínum heimildum að hann muni á næstu dögum skrifa undir þriggja ára samning við Glostrup.

Nýverið bárust fregnir af því að Ólafur hefði skrifað undir þriggja ára samning við Ciudad Real, þar sem hann hefur verið undanfarin sex ár, en þær munu ekki vera réttar.

Glostrup er í eigu dansks skartgripasala sem ætlar að leggja háa fjármuni í liðið og hefja það í hæstu hæðir.