5 bestu leikmenn íslenska landsins ( að mínu mati ) . 1. Ætli ég verði ekki að segja Guðjón Valur Sigurðsson. Einn af mínum uppáhaldsleikmönnum úr landsliðinu, spilar hratt og vel og er að standa sig.

2. Ólafur Indriði Stefánsson. Hann var einn af bestu leikmönnum landsliðsins að mínu mati og er enn mjög efnilegur og góður leikmaður.

3. Snorri Steinn Guðjónsson , finnst hann eiga þetta sæti skilið, er mjög góður leikmaður og er að standa sig mjög vel og sérstaklega á EM.

4. Logi Geirsson , Logi og Snorri eru mjög jafnir leikmenn og eiga þá heima í þessum sætum. Sáttur með hann á EM, stóð sig mjög vel.

5. Ætli það sé ekki bara Birkir Ívar Guðmundsson. Stóð sig vel á EM og er mjög efnilegur markmaður. Sáttur með hann og vill sjá hann gera góða hluti áfram.

Njótið og takið eftir, þetta er aðeins að mínu mati svo engin skítköst, takk fyrir :D .