Ætla hér að starta umræðum um leikinn bara núna, leyfa mönnum aðeins að spá og spekulera nokkuð fyrir leik þó það sé nokkuð snemma..

En hverjir hérna ætla að fara á leikinn? Ég fer kannski, ég verð líklega í útilegu einhversstaðar á þessum tima þannig að það er óvíst, foreldrar mínir voru að spá í að leyfa mér að vera einum heima þessa helgi :O Bara útaf leiknum held ég, eitthvað sem ég átti ekki von á enda hafa þau aldrei leyft mér það áður heh..

Hvernig eigiði von á að liðið verði skipað og hvernig gangur leiksins verður? Sjálfur á ég von á alveg hörkuleik og Ísland slaki lítið á þrátt fyrir að vera í 4. marka forystu.