Orðin íþrótt og þó enn fremur menning og list hafa hvert um sig nokkrar merkingar. Orðabók Menningarsjóðs veitir þessa skýringu meðal annarra á list: ‘sú íþrótt að búa til e-ð fagurt eða eftirtektarvert’ og flokkar þannig list undir íþróttir í einum skilningi.

Væntanlega hefur spyrjandi þó í huga þá merkingu orðsins ‘íþróttir’ sem mest tíðkast í dag, leiki og keppnir þar sem reynir á líkamlegan styrk og getu þátttakenda. Ljóst er að þessar íþróttir tilheyra menningu okkar í yfirgripsmesta skilningi þess orðs – þær tilheyra því sem mennirnir taka sér fyrir hendur í samfélaginu.

'List' í samhenginu ‘menning og listir’ er sjálfsagt ætluð þessi fyrrnefnda merking úr Orðabók Menningarsjóðs, frekar en hin sem einnig er til og er að nokkru yfirgripsmeiri: ‘leikni, færni, hæfileiki’.

Þá spyrjum við: Flokkast leikir og keppnir þar sem reynir á líkamlegan styrk og getu þátttakenda undir þá íþrótt að búa til eitthvað fagurt eða eftirtektarvert?

Þeirri spurningu myndu menn svara misjafnlega. Í höndum færustu íþróttamanna verður trúlega til eitthvað fagurt eða eftirtektarvert og því virðist samkvæmt inntaki orðanna ekkert því til fyrirstöðu að telja íþróttir til lista.

En hér verður mikilvægt að greina milli inntaks orða og umtaks þeirra. Inntak er fólgið í orðaskilgreiningum, venslum hugtaka sín á milli. Hér að ofan lýstum við mögulegu inntaki orðanna sem við skoðum. Umtak orðanna er svið þeirra einstöku fyrirbæra sem þau ná yfir. Listi yfir fyrirbæri sem orðið ‘íþróttir’ tekur yfir er: ‘fótbolti, handbolti, blak, hjólreiðar, sund …’ Fyrirbæri sem heyra til umtaks ‘lista’ eru t.d. málaralist, höggmyndagerð, tónlist, bókmenntir og fleira.

Hér er torfundið nokkuð sameiginlegt. Þrátt fyrir að inntak orðsins ‘íþróttir’ í algengasta skilningi geti í mörgum tilfellum heyrt undir inntak orðsins ‘listir’ í algengum skilningi þess eru torfundin einstök fyrirbæri sem heyra til umtaks beggja.

Upphaflegu spurningunni verður því svarað í tvennu lagi. Íþróttir tilheyra menningu okkar í almennum skilningi, það er nokkuð óyggjandi. En hvort íþróttir sé hægt að flokka undir listir, eins og orðin eru almennt skilin, er ekki óyggjandi að sama skapi, að nokkru vegna þess að inntak og umtak orðanna virðast stangast á. Og þá getur menn greint á um hvort skuli halda og hvort víkja.
Það sem er á botninum á gosi er 90% slef úr þér og þeim sem drukku úr flöskunni. Hughreystandi ey? :P