Árni Þór Sigtryggsson Eins og flestir vita er Árni þór mjög ungur og efnilegur handboltamaður.
Hann er 20 ára og framtíðarmaður í landsliðinu og á örruglega eftir að ná mjög langt í handbolta.
Árni hefur verið að spila gríðarlega vel með Þór í vetur og er meðal annars 3. markahæsti leikmaður DHL-deildarinnar.
Mörg lið hafa sínt honum áhuga, bæði í útlöndum og á Íslandi. Núna er hann í reynslu hjá þýska liðinu Flensburg og var fyrir skömmu líka hjá reynslu hjá Göppingen.
Árni spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik 15 ára held ég og var strax einn af mikilvægustu mönnum liðsins.
Hann skoraði sitt fyrsta lansliðsmark á móti Pólverjum í vináttuleik um páskana.
Það er ekki hægt að segja annað en þetta er einn af bestu mönnum Íslands.