Þjóðverjar sigruðu heimsmeistara Frakka, 23:22, í undanúrslitum heimsmeistarakeppninnar í handknattleik í Lissabon í dag. Þeir leika því til úrslita á morgun gegn hinu sterka liði Króata. Pascal Hens skoraði 6 mörk fyrir Þjóðverja í dag og Daniel Narcisse gerði 6 mörk fyrir Frakka.