Tapið á móti Rússum er engan veginn ásættanlegt. Íslendingar gerðu þónokkur mistök í leiknum (as usual) og er augljóst að Óli er orðinn allt of þreyttur til að halda áfram. Guðjón Valur stóð sig vel að vanda og er ég farin að pæla í því hvort hann verði aldrei þreyttur.
En ekki taka mikið mark á mér, ég er bara ógeðslega fúl og reið yfir því að við missum af ólympíusætinu þar sem ég býst ekki við því að við vinnum Júgóslavana.
Ég ætla ekki að skoða þennan kork aftur þannig að ekki hafa fyrir því að svara þessu
tapsár snikkin