Lið Rússa sigraði Íslendinga mjög örugglega 39-28 í fyrsta leik liðanna í B-riðli á Heimsbikarmótinu í handknattleik í Svíþjóð. Íslendingar voru þremur mörkum undir í hálfleik og í seinni hálfleik völtuðu Rússar hreinlega yfir íslenska liðið.
Markahæstur í liði Íslendinga var Patrekur Jóhannesson en hann skoraði 6 mörk. Næstur kom svo Sigfús Sigurðsson með 5 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson skoruðu 4 mörk. Ólafur Stefánsson gerði aðeins 2 mörk eins og Gústaf Bjarnason og Róbert Sighvatsson. Sigurður Bjarnason, Gunnar Berg og Aron Kristjánsson skoruðu svo 1 mark fyrir íslenska liðið í kvöld. Guðmundur Hrafnkelsson og Birkir Ívar Guðmundsson vörðu báðir 6 skot í markinu.
I like to kill and dance ballet.