Magdeburg lagði Göppingen 35-28 í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld.
Arnór Atlason skoraði 3 mörk fyrir Magdeburg og Sigfús Sigurðsson 2.
Jaliesky Garcia skoraði 5 mörk fyrir Göppingen og Andrius Stelmokas 3
Kiel endurheimti 2 stiga forystu deildinni með því að vinna Minden 34-31 á útivelli.
Þegar 2 umferðir eru eftir af deildinni er Kiel efst með 58 stig, Flensburg í 2. sæti með 56 stig og Magdeburg í 3. sæti með 47 stig.