Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar, sigraði Granollers 38-26 í spænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.
Ólafur hafði hægt um sig og skoraði ekki mark.
Ademar Leon lagði Barcelona 35-27 í uppgjöri tveggja nýkrýndra Evrópumeistaraliða.
Portland San Antonio er efst í deildinni með 54 stig eftir 28 leiki.
Ciudad Real er í 2. sæti með 51 stig og síðan koma Ademar Leon og Barcelona með 48 stig.