Um Hvítasunnuna verður mót hjá U-88 landsliði kvenna. Þetta mót er undankeppni EM sem fer fram í sumar í Austurríki.

Leikjaplan á mótinu er eftirfarandi:

Dags. Tími Leikur

13.5.2005 kl.15.00 Litháen - Búlgaría
13.5.2005 kl.17.00 Rússland - ÍSLAND

14.5.2005 kl.14.00 Búlgaría - Rússland
14.5.2005 kl.16.00 ÍSLAND - Litháen

15.5.2005 kl.14.00 Rússland - Litháen
15.5.2005 kl.16.00 ÍSLAND - Búlgaría

Leikið er í Digranesi í Kópavogi og verður frítt inn alla dagana.