Það er mikið ánægjuefni að markvörðurinn snjalli Hlynur Jóhannesson hefur skrifað undir nýjan samning við Val og verður því í markinu hjá Val ásamt Pálmari Péturssyni, sem skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í lok apríl, á næsta tímabili. Þeir tveir hafa myndað eitt öflugasta markmannsparið í ár og gleðilegt fyrir okkur Valsmenn að þeir munu í sameiningu hrella aðra leikmenn á næsta tímabili.