Lokahóf HSÍ Hvað fannst mönnum, og konum :) um útnefningar bestu leikmanna Nissandeildar karla og kvenna. Það vekur svolítið mikla athygli að hvorki Ragnar Hermannson né Viggó Sigurðsson þjálfarar Íslandsmeistara Hauka eru tilnefndir, auk þess sem Haukarnir höfðu eingöngu tilnefnda efnilegustu leikmenn og besta markmann karla. Þetta er svolítið skrítið svona í ljósi þess hversu mikla yfirburði þessi lið hafa sýnt í vetur sérstaklega kvennaliðið.

En annars voru útnefningarnar svona:
Bestu Leikmenn:Guðjón Valur, KA ; Vigdís Sigurðardóttir, ÍBV
Efnilegust:Einar Hólmgeirsson, ÍR og Jenný Ásmundsdóttir, Haukum
Bestu þjálfararnir: Atli Hilmarsson, KA og Sigbjörn Óskarsson ÍBV.
Bestu markvmenn: Roland Eradze, Val og Vigdís Sigurðardóttir, ÍBV
Bestu varnarmenn: Júlíus Jónasson, Val og Auður , Haukum.
Bestu sóknarmenn: Guðjón Valur , KA og Tamara Madzic, ÍBV.
Besta dómaraparið: Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson.
Háttvísiverðlaun HSÍ: Guðjón Valur og Auður Hermannsdóttir.