Danir sigruðu íslenska liðið 31-32 í seinni æfingarleik í Smáranum í gær. Í hálfleik var 20-17 fyrir Íslendinga. Íslendingar voru undir nánast allan leikinn fyrir utan upphafsmínúturnar og það voru sérstaklega markverðir Dananna sem sátu í okkur, vörðu hvert vítið á fætur öðru ásamt að verja úr hverju upplagða færinu á fætur öðru. Jaliesky Garcia lék vel í fyrri hálfleik en annars var liðið nokkuð jafnt og enginn skar sig úr hópnum. Þessir tveir æfingaleikir við Dani fóru því 1-1 en samanlagt unnum við 67-63. Ólafur Stefánsson var ekki með í þessum seinni leik en hann skoraði 12 mörk í þeim fyrri og það munar um minna.
Jaliesky Garcia var markahæstur
íslensku leikmannanna með 9 mörk og
Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með
8 mörk.

Kveðja kristinn18