Aðalsteinn Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari mfl kvenna Gróttu/KR. Undirritaður var samningur þess efnis um helgina. Það er mikil ánægja í okkar herbúðum að vera búin að krækja í Aðalstein, árangur hans hingað til talar sínu máli og væntum við mikils af honum og liði okkar næsta tímabil sagði Ásgeir Jónsson stjórnarmaður í samtali við heimasíðu Gróttu/KR, rétt eftir undirritun samningsins.

Nú verður farið í það að fá einn - tvo sterka leikmenn til liðsins, hinsvegar munum við áfram byggja lið okkar upp á ungu og efnilegu stelpunum sem náðu frábærum árangri síðastliðið tímabil, urðu meðal annars Íslandsmeistarar í unglingaflokki sagði Ásgeir einnig.

Kveðja kristinn18