Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta hefur valið hópinn sem mætir Dönum í æfingaleikjum á föstudag og laugardag. Fyrri leikurinn fer fram í Austurbergi en hinn síðari í Smáranum í Kópavogi.

Liðið sem mætir Dönum um næstu helgi:

Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Roland Eraze og Birkir Ívar Guðmundsson.
Aðrir leikmenn: Guðjón Valur Sigurðsson, Logi Geirsson, Bjarni Fritzson, Einar Örn Jónsson, Róbert Sighvatsson, Róbert Gunnarsson, Vignir Svavarsson, Dagur Sigurðsson, Jaliesky Garcia, Snorri Steinn Guðjónsson, Markús Máni Maute, Rúnar Sigtryggsson, Einar Hólmgeirsson, Patrekur Jóhannesson, Ólafur Stefánsson, Aron Kristjánsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson.

Kveðja kristinn18