Andrius Stelmokas, línumaður hjá KA , hefur ákveðið að leika áfram með handknattleiksliði KA á næstu leiktíð. Stelmokas staðfesti ákvörðun í samtali við forráðamenn KA í gær og er reiknað með að undirritaður verði samningur í vikunni en fyrri samningur hans og KA-liðsins er runninn út.
Stelmokas hefur leikið með KA undanfarin þrjú og verið einn besti leikmaður liðsins og hann var markahæstur KA-manna þetta tímabil með 167 mörk. Deildarmeistarar Hauka voru meðal þeirra sem borið höfðu víur sínar í Stelmokas, en eftir nokkra umhugsun mun hann hafa ákveðið að vera áfram í herbúðum KA, en hann varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu fyrir ári.

Kveðja kristinn18