Haukar sigruðu ÍR-inga, 25-22, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Esso-deild karla sem fór fram á Ásvöllum. Haukarnir voru með góða forystu allan síðari hálfleik.
ÍR-ingar komust í 5-2 en Haukar skoruðu svo sjö mörk í röð og í hálfleik var staðan 11-8. Í síðari hálfleik voru Haukar með góða forystu og mest sem þeir komust yfir var svona 5-6 mörk yfir ÍR. ÍR-ingar skoruðu síðustu þrjú mörkin í leiknum en náðu ekki að jafna.

Halldór Ingólfsson skoraði 8 mörk fyrir Hauka, Vignir Sverrisson 4 og Aron Kristjánsson 4. Birkir Ívar Guðmundsson átti stórleik í marki Hafnfirðinga og varði 21 skot! Guðlaugur Guðlaugur Hauksson skoraði 5 mörk fyrir ÍR, Ólafur Sigurjónsson 4 og Einar Hólmgeirsson 4.

Haukar eru þá að vinna einvígið 1-0 en næsti leikur er í Austurbergi á fimmtudaginn.

Kveðja kristinn18