Ólafur Stefánsson skoraði 7 mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar lið hans Magdeburg, vann Pfullingen 38-30 í þýsku fyrstu deildinni.
Sigfús Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg, sem heldur þriðja sæti deildarinna með 41 stig.
Essen fylgir Magdeburg í fjórða sæti með 40 stig eftir tveggja marka sigur á Kiel 27-25. Patrekur Jóhannesson skoraði tvö mörk en Guðjón Valur eitt.
Kveðja kristinn18