Frábær árangur Óla dugði ekki. Ólafur Stefánsson var alveg stórkostlegur og skoraði heil 16 mörk fyrir Magdeburg gegn spænska liðinu Portland San Antonio(USA-USA-Herma eftir USA) í Meistaradeild Evrópu í handbolta en liðin voru að keppa á Spáni í gærkvöld. Það var þó ekki nógu gott fyrir Magdeburg því að niðurstaðan var einungis jafntefli, 34:34, en þar sem Portland San Antonio vann fyrri leikinn á heimavelli Magdeburg, 26:22, er liðið komið í undanúrslit en Evrópumeistarar Magdeburg eru úr leik. Sigfús Sigurðsson skoraði 2 mörk fyrir Magdeburg.
Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.