Óvíst er hvort Patrekur Jóhannesson geti leikið með íslenska landsliðinu í handknattleik þegar það mætir Júgóslövum á morgun í úrslitaleik um 7. sætið á HM og þátttökurétt á Ólympíuleikunum 2004. Patrekur fékk þungt högg á lærið í leiknum við Rússa í dag og kom ekki meira við sögu eftir það. Sigurður Bjarnason verður hinsvegar örugglega með á morgun, hann hvíldi í dag vegna meiðsla en er tilbúinn í slaginn gegn Júgóslövum.