Magnus Andersson einn reyndasti leikmaður sænska landsliðsins í handknattleik fékk þær sorgarfréttir í gærmorgun að faðir hans hefði látist.Hann var 93 ára gamall.Aron Kristjánsson er eini leikmaður íslenska landsliðshópsins sem hefur glímt við magakveisu undanfarna daga.Bogdan Zajaczkowski þjálfari pólska landsliðsins í handbolta segir að Pólverjar eru ekki sigurstranglegir á móti Íslendingum.Gezegorz Tkaczyk er efnilegasti leikmaður Póllands og gæti verið geysi hættulegur.Hann er í treyju númer 6 og er 22 ára gamall og er hefur skorað flest mörk fyrir Pólverja á HM 24 talsins.Þar af gerði hann 11 í mikilvægasta leik þeirra sigrinum á Túnis 24:22.Mariusz Jurasik er næst markahæstur með 17 mörk.
Kær kveðja kristinn18