4.flokkur Ég er í 4. flokki kvenna, og flokkurinn minn fer til Svíþjóðarí sumar í keppnisferðarlag. Mótið heitir Partilla cup og það er í Gautaborg. Ferðalagið kostar 49,900 og ég hlakka svo til. Allavega er ég ekki að æfa bara til þess að fara þangað, margar stelpur (og strákar sem eru að fara út) sem byrja í handbolta bara til þess að fara út og hætta svo. Það er algjörlega metnaðarlaust.
Það kom kona frá ferðarskrifstofunni og var að kynna mótið fyrir okkur, hún sýndi okkur myndband af mótinu og sáum við á þessu myndbandi að þetta mót yrði haldið úti en úrslitaleikirnir inni. Þetta var samt geðveikt spennandi, á sama tíma þegar mótið verður haldið þá verða leiknir leikir í öðrum keppnum. Þetta mót er haldið í 33 skipti í ár og því hafa svíar mikla reynslu af þessu móti. Magnus Wislander, fyriliði Svía í handbolta og útnefndur besti handknattleiksmaður allra tíma, verður á Partille Cup með íslenskum krökkum og talsmaður íslendinga.
Í þessum 49,900 krónum er innifalið: flug,skattar,ferðir til og frá flugvelli, mótið 19 máltíðir, aðgangskort að Liseberg skemmtigarðinum í gautaborg,dagsferð í Skara Sommerland,ferðir og aðgangur, íslensk farastjórn!!