Hæ allir, Ég er 22 ára gæji sem hefur verið að gera ýmislegt um ævina og flest allt óíþróttalega hluti, en síðustu tvö ár hef ég haft brennandi áhuga á handbolta. Ég horfði á keppnina í svíþjóð og fannst hún snilld og við stóðum okkur með prýði. En ég hef verið að spá hvort það sé hægt fyrir náunga á mínum aldri að komast í eitthvað handbolta lið ? Ég geri mér grein fyrir því að formið sem ég er í, er ekki uppá það besta og að ég hef aldrei æft handbolta um ævina og ekki spilað mikið. En mig langar að prófa og gá hvort maður hafi einhverja hæfileika í þetta.

Þannig að ef það er eitthvað lið sem til í prófa óreyndan 22 ára, feiminn,gamlan kall, í ekki svo góðu formi þá hefði ég gaman að heyra frá ykkur :)

En hvað finnst ykkur samt ? kæru hugarar, haldiði að ég hafi möguleika í þetta ?


Bestu kveðjur

EinarSig