Á morgun laugardag verður leikinn síðari leikur Hauka og spænska liðsins Ademar Leon frá Spáni á Ásvöllum í Hafnarfirði. Ademar er með eitt sterkasta lið Evrópu og því verður erfitt fyrir Haukana er vinna upp átta marka tapið á sunnudaginn síðasta í fyrri leik liðanna sem fram fór á Spáni. Ég hvet því alla til að mæta á Ásvelli og hvetja Haukamenn til sigurs því auðvitað viljum við öll eiga íslenskt lið í evrópukeppni. Haukar verða að vinna með átta marka mun eða meira og ef þeir vinna með átta mörkum og skora fleiri en 29 mörk komast þeir áfram í átta-liða úrslit evrópukeppni bikarhafa. Það verður því án efa gott fyrir strákana úr Firðinum að fá góðan stuðning frá áhorfendum. Leikurinn hefst klukkan 16:30 og er gott að benda á það að frítt verður fyrir alla krakka 14 ára og yngri og einnig eins og vanalega fyrir ellilífeyrisþegar og öryrkja. Vona til þess að sjá sem flesta á Ásvöllum á morgun og ÁFRAM HAUKAR, ÁFRAM ÍSLAND!!!!!