Hafnarfjarðar slagurinn! Hafnarfjarðarslag FH og Hauka frestað (mbl.is)

HSÍ hefur að beiðni Hauka og FH frestað leik Hafnarfjarðarliðanna í Esso-deild karla í handknattleik sem fram átti að fara á Ásvöllum á miðvikudagskvöld. Nýr leiktími hefur verið ákveðinn miðvikudaginn 4. desember. Haukarnir leituðu til FH-inga um frestunina þar sem þeir standa í ströngu í Evrópukeppninni. Þeir komu síðdegis í dag til landsins eftir erfitt ferðalag frá Ítalíu þar sem þeir gerðu jafntefli við Conversano en síðari leikur liðanna fer fram á Ásvöllum á laugardag.

Þetta verður rosalegur leikur og hvet alla til að fara á leikinn, og hver veit nema að Viggó Sigurðsson taki eitt skemmtiatriði fyrir áhorfendur. Endilega giskiði á markatölu leiksins og hver eiga eftir að standa sig best í báðum liðum ;)