Hér ætla ég að segja frá ferðaáætlun Hauka á leiðinni til Ítalíu.

Haukar lögðu af stað í morgun (föstud.) nánar til tekið um klukkan 5 í morgun útá flugvöll til að fara með flugi til Parísar. Það er í Frakklandi fyrir þá sem vita ekkert. En þeir verða þar í dag og taka svo flug til Napolí á ítalíu í kvöld. Áætlað er að þeir verða komnir til Ítalíu um 11 leitið í kvöld.

Þá mun taka við skemmtileg 5 klukkutíma rútuferð til Conversano. En eftir tæplega sólarhrings ferðalag munu þeir verða komnir inn á hótelherbergi. Laugardagurinn mun vera notaður í æfingar undirbúning fyrir leikinn, svefn og afsöppun.

Og loks verður leikið klukkan 18:30 að staðartíma eða 17:30 að Íslenskum tíma og svo að leik loknum mun taka við sama ferðalagið heim aftur.