Sælir handboltaáhugamenn.

Loksins er kominn stjórnandi á áhugamálið og vona ég að þetta eigi eftir að lifna smávegis við.

Eins og menn hafa tekið eftir hefur þetta áhugamál verið stjórnendalaust í nokkuð langann tíma. En eftir nokkrar innsendar umsóknir frá mér þá loksins var samþykt að ég yrði stjórnandi.

Ég hvet ykkur til að senda inn greinar um hitt og þetta sem tengist handbolta. Og einnig að senda bara beint til mín eða á korkinn hugmyndir sem gætu orðið áhugamálinu til framdráttar.

Ég ætla að láta fylgja með að ég er FH-ingur. Ef ykkur finst störf mín hér vera lituð (svart/hvít) af því þá bara látið mig vita. Ég ætla mér nú ekki að mismuna félögum á neinn hátt. Allt svoleiðis yrði bara óvart.

Einnig má benda á að þetta áhugamál er ekki einungis fyrir meistaraflokka heldur allt sem tengist handbolta. Innanlands sem utan, kvennaflokk sem karlaflokk, 5. flokk sem meistaraflokk.

Kveðja Gabbler.
“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”