Heyriði, á miðvikudaginn brotnaði ég illa á upphandleggnum, og höndin mín danglaði bara einhvað til, s.s. mjög slæmt brot. En ég er að leita að video sem að er mjög svipað brot nema bara á fætinum á gaur sem er að keppa í boxi / wma eða einhvað þannig, hann s.s. sparkar í fótinn á andstæðingnum og fóturinn hans brotnar og danglar bara einhvað til, svo ætlar hann að stíga í fótinn og þá fer hann bara saman og hann dettur á hliðina. Mig minnir að hann hafi verið svertingi.

PLÍS, ef þið vitið hvaða video ég er að tala um, þá megiði hjálpa mér að finna það og endilega senda link, ég verð að sjá þetta video og sýna öðrum. Ég veit ekki hvort þetta video hefur verið sent hér inn en það er örugglega á youtube, finn það bara ekki.