Hvernig finnst ykkur þetta demo? Mér finnst það einhvern veginn vera allt öðruvísi en fyrstu 2 leikirnir. Ég var að vona að þetta væri líkara þeim. Það er eins og byssurnar séu kraftlitlar og jafnvel minnstu óvinir þvílíkt sterkir og þeir missa aldrei marks. Ég er fastur í einhverri brekku á milli tveggja geislahliða snemma í demoinu og er bara drepinn á stundinni. Þannig ef einhver getur ráðlagt mér eitthvað þá endilega látið vita.