Er það bara ég eða er þetta versta afsökun fyrir demói sem litið hefur dagsins ljós?

Ég ætlaði aðeins að prófa þetta, læt mig hafa það að downloada þessu og keyra upp. Í fyrsta lagi fær maður frábæra upplausn til að byrja með, 640x eitthvað, og eina leiðin til að komast nálægt minni upplausn var að halda inni takkanum, skemmtilegt, sérstaklega þar sem sensitivityið fyrir músina í menuinu var í kringum 900.

Komst loksins í rétta upplausn og ætlaði að stilla stjórnvölin. Þá er bara búið að velja fyrir mig eitthvað joystick sem ég á ekki og ég fæ ekki að velja neitt annað.

Núna ætlaði ég bara að prófa leikinn upp á gamanið, því ljóst var að ég var ekki að fara skjóta bófa með joysticki sem ég á ekki.

Ekkert hljóð í intro myndinni, kemur ekkert á óvart í raun. Hinsvegar fæ ég svona flotta subtitles yfir það sem á að vera heyrast eins og “Introductory Music”.

Svo þegar leikurinn byrjar loksins rennur bíllinn bara áfram eins of við var að búast, og springur svo í loft upp.

Við erum ekki að tala um mínútum seinna, nei, sekúndum eftir að ég byrjaði borðið spring ég bara í loft upp.

Rosalega ætla ég að kaupa mér þennann leik.