Mér datt í hug að það ættu kannski að vera fleiri stjórnendur á Háhraða áhugamálið. Einhvern mjög virkan og annaðhvort með ókeypis utanlandsniðurhal eða hann er tilbúinn að borga kostnaðinn.

Ef hann væri síðan með eitthverja stæla og væri ekkert að standa sig þá gæti t.d. JReykdal hent honum útaf og reyna að fá einhvern nýjan í staðinn.

Bara til þess að reyna að lífga upp á þetta áhugamál soldið.. Núverandi stjórnendur eru ekki búnir að vera mjög aktívir að setja inn en ég veit ekki kannski eru þeir að safna saman haug af flottum video-um eða þá að það er mikið að gera hjá þeim en allavega væri ég til í að heyra álit fólks á þessari hugmynd.

Með virðingu fyrir núverandi stjórnendum