Ég verð að segja það að ég er ekki hrifinn af uppfærslunum hérna á bænum, hvar veldur því að leikjademoin og kvikmyndirnar uppfærast að meðaltali einu sinni í mánuði….

Ég bendi mér til stuðnings á nafn síðunnar….HÁHRAÐI….hérna eiga hlutirnir að gerast hratt…ekki satt.

Ef það er útskýring á þessu, vildi ég gjarnan heyra hana frá einhverjum sem hefur með þetta að gera. Þessi síða er í eigu símans, síminn er ennþá rekinn fyrir skattpengina þjóðarinnar sem og rekstarinnkomu, ég er hluti af þjóðinni og ég borga mína skatta……

Mkv. Feigu
Þeir tala lang mest…sem geta ekkert.