Fyrir þá sem fatta ekki hvernig á að drepa risann í seinna borðinu þá á að berja AFTAN á lapprinar á honum þar til hann dettur. Þá klifraru upp á hann og ferð að berja í hausinn á honum. (ATH. ef þú ert of lengi að klifra upp á hann, stendur hann upp og fær aftur lífið sem hann missti við lappalemstringuna.) Þegar þú ert að berja í hausinn á honum reynir hann að grípa í þig og henda þér burt. (Sem meiðir mikið og getur látið þig hafna í göddunum sem þú wall-jumpaðir yfir á leiðinni upp.) Til að koma í veg fyrir það verður þú að taka eftir því þegar hann gerir sig líklegan og hætta að berja hann. Taktu eftir hvora hendina hann ætlar að nota og færðu þig í andstæða átt. Svo náttúrulega ef hann nær að henda þér er alltaf rewind takkinn =D.

P.S. Ef þú klárar sandinn þinn er meiri til í krukkunum sem eru dreifðar um borðið.