Vill bara byrja á því að segja að þetta er mjög flottur leikur og öllum sem fanst sands of time góður ættu að prófa þennan. Nú að vandamálinu. Leikurinn spilast vel í tölvunni og allt gott, en þegar ég kem að endakallinum í öðru borðinu genguyr misvela að drepa hann. Málið er að þegar hann snýr í vissa átt, frosnar hann og flyst út í horn og er hægt að labba í gegnum hann og þar með er ekki hægt að lemja hann. Endar þetta á því að ég drep kallinn minn og byrja borðið upp á nýtt. Þetta gerist í hvert einasta skipti og ég er ekki ánægður með það. Spurningin er: Er þetta svona hjá ykkur öllum eða er þetta bara hjá mér?