ELOY Æðisgengin þýsk proggsveit sem ég hef verið að hlusta á undanfarið. Uppgötvaði þá á útvarpsstöðinni Aural Moon sem er progressive stöð sem ég fann í I tunes. Frábært að geta líka alltaf seð hvað lögin og hljómsveitirnar heita sem eru að spila hverju sinni. Gallinn við útvarpsstöðvar yfir höfuð er að það er sjaldan sagt hverjir eru að spila. Yrði samt kannski leiðinlegt að láta einhvern kall segja það eftir hvert einasta lag..ég veit ekki.