Odessey and Oracle - The Zombies Plötu albúmið af hinum frábæra disk með hljómsveitinni ‘The Zombies’ sem kom út árið 1968. Tónlist þeirra mætti líkja við sveitir einsog The Beach Boys, Herman Hermit's, The Hollies, Manfred Mann og fleiri góða.

Ef fólk kannast ekki við hljómsveitina þá ættu þeir kannski að vera eitthvað nær ef ég nefni lagið ‘Time of the Season’ sem meðal annars er að finna á þessum disk!

Gæðadiskur sem ég mæli með að allir kynni sér þó hann njóti kannski ekki sömu frægðar og aðrar gullaldarplötur!

Lögin:

1. Care of Cell 44
2. A Rose for Emily
3. Maybe After He's Gone
4. Beechwood Park
5. Brief Candles
6. Hung up on a Dream
7. Changes
8. I Want Her She Wants Me
9. This Will Be Our Year
10. Butcher's Tale (Western Front 1914)
11. Friends of Mine
12. Time of the Season