Já þið heyrðuð rétt. Merkishljómsveitin Jethro Tull er á leiðinni aftur til Íslands og mun hún spila aftur í Háskólabíó þann 11. september næstkomandi.

Hljómsveitin kemur á eigin vegum og miðaverð verður í lágmarki og talað er um að allur ágóði tónleikanna rennur til fórnarlamba íslensku efnahagskreppunnar.

Ég mæli með að fólk splæsi í miða þar sem um er að ræða frábært band!