Þeir ættu bara að sleppa þessu ef þeir fara ekki með Plant. Eeeen, þeir kappar vilja þetta víst svo það er ekki mikið sem maður getur gert. Persónulega finnst mér kjánalegt að fara þessa leið.
Fyrir mig sem mikinn Led Zeppelin aðdáðanda er ég ekki sáttur og það væri ekki gaman að fara á tónleika þar sem þeir eru að spila og það vantar Plant, það er nokkurnvegin eins og önnur hljómsveit.
*Roberts Plant - það fer aldrei eignarfall á eftirnafn útlendinga í íslensku ;)
Annars er það auðséð að þarna eru þeir félaga JPJ og Jimmy Page í peningaleit, þeir eru augljóslega orðnir eitthvað blankir enda lítið verið í sviðsljósinu. Plant er hinsvegar með ágætis sóloferil (með eigin hljómsveit og svona) og hefur verið að túra sjálfur og sér greinilega ekki fram á það að þurfa að fara í Reunion túr til að halda sér á floti fjárhagslega.
Ég er frekar mikill Led zeppelin fan og ef Plant væri með myndi eg borga hátt uppí 30.000 kallinn fyrir að sjá þá en ef hann er ekki með myndi ég samt fara en ekki fyrir meira en 7000 kr.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..