Bítlarnir fyrrverandi eru enn gífurlega vinsælir, þrátt fyrir að tveir þeirra séu látnir.



Bítlarnir vinsælir austan hafs og vestan
Plötur með lögum eftir Bítlana fyrrverandi, Paul McCartney, George Harrison og John Lennon, eru allar á lista yfir fimmtán vinsælustu plötur Bandaríkjanna.

McCartney, sem hélt upp á 65 ára afmælið sitt 18. júní, er í þriðja sæti á Billboard-listanum með nýjustu sólóplötu sína Memory Almost Full. Í níunda sæti er tvöföld safnplata The Traveling Wilburys, fyrrum hljómsveitar George Harrison og í því fimmtánda er góðgerðarplatan Instant Karma, sem hefur að geyma útgáfur ýmissa hljómsveita á lögum Johns Lennon.

Sextán ár eru liðin síðan The Traveling Wilburys átti plötu á Billboard-listanum. Fyrsta plata sveitarinnar fór hæst í þriðja sætið á listanum eftir að hún kom út 1988 en sú næsta, sem var gefin út eftir dauða Roy Orbison, fór hæst í ellefta sætið. Hún kom út árið 1990.
Í Bretlandi fór plata The Traveling Wilburys beint í efsta sætið. Plata McCartneys er í tíunda sæti og safnplatan Lennons Legend - The Very Best of fór í 30. sætið sína fyrstu viku á lista. Platan Instant Karma kemur út þar í landi á miðvikudag.

Heimild: Visir.is