The Sweet Heyrðu já…Hvar eru allir Sweet aðdáendur á Huga. Besta Glam rokk hljómsveit síðustu aldar, ásamt T-rex og Slade. Þetta er bara svo mögnuð hljómsveit. Það hafa eflaust margir heyrt lagið “Ballroom Blitz” en ekki margir sem vita með hverjum þetta er. Þetta band á reyndar svaka mikið af aðdáendur en maður sér þá ekki marga hérlendis. En þetta er hljómsveit sem ég dýrkaði í botn eftir fyrstu hlustun og hvert einasta lag á greatest hits plötunni þeirra er gott…en þar stendur lagið “The Six Teens” uppúr. Það skemmir ekki fyrir að þessir meistarar eru allir hörkutónlistarmenn og söngvarinn Brian Connolly ekki af verri endanum. Brian Connolly lést árið 1997, og trommarinn Mick Tucker lést árið 2002. En restin af bandinu Steve Priest og Andy Scott eru eitthvað ennþá að spila. Samt eitthvað sem ekki er hægt að kalla The Sweet.
Þess má til gamans geta að þessi hljómsveit varð til úr hljómsveitinni Wainright's Gentlemen, en í henni voru Trommarinn Mick Tucker og svo enginn annar en Ian Gillan..ef fljótt hætti Gillan og þá fékk Mick til liðs við sig Brian Connolly. En allavega örugglega enginn að nenna að lesa þetta. Bara láta ykkur vita af leyndarmáli.