Ég setti kork hérna inn fyrir stuttu sem eitthvað fór úrskeiðis og sumir virtust ekki geta hamið sig í skítkastinu, ég ætla að reyna aftur en nú með annan vinkill.

Það hafa allir gaman af tónlist sem þeir eiga ekki að hafa gaman að, allir hafa sín frávik. Það væri til dæmis ekki talið eðlilegt fyrir harðasta metalhaus að hafa neitt sérstaklega gaman af Eminem, eða fyrir Led Zeppelin aðdáanda að hlusta nýjustu teknó eða house lögin. En það er staðreynd að allir hafa svona “guilty pleasures”, eitthvað sem þeir opinbera kannski ekki strax fyrir framan alla kunningjana.

En nú, undir nafn leynd veraldarvefsins, býð ég ykkur að uppljóstra leyndarmálum ykkar.

Og eins og fyrri daginn skal ég byrja, ég hef staðið sjálfan mig að því að raula með nokkrum lögum í flutningi Robbie Williams, ásamt því að stappa fæti í takt við örfá teknó lög og þess lags.